Categories
Tímaskráning

Tímaskráning í gegnum heimasíðu

vefklukkaÞað er stöðugt að fjölga í þeim hópi fyrirtækja sem nýta sér tímaskráningu í gegnum vefinn þar sem starfsmaður slær inn auðkennisnúmer sitt, annaðhvort á takkaborð eða á snertiskjá.

Þessi lausn er afskaplega þægileg á margan hátt. Mjög fljót í uppsetningu og mikill sveigjanleiki varðandi breytingar. Allar skráningar skrást miðlægt og er úrvinnsla á upplýsingum þægileg og aðgengileg nánast hvaðan sem er.

Oftast eru þessar lausnir seldar í áskrift. Það þýðir að stofnkostnaður er yfirleitt mjög lítill.

Margir aðilar bjóða upp á tímaskráningu í gegnum heimasíðu.

Kostir:

  • Oftast frekar einfalt í notkun
  • Rafræn skráning
  • Engin spjöld eða kort sem þarf að hafa á sér
  • Býður upp á einfaldleika og sjálfvirkni við úrvinnslu
  • Hægt að nálgast nánast hvaðan sem er

Gallar:

  • Hægt að nálgast nánast hvaðan sem er
  • Starfsmenn geta stimplað hvorn annan inn/út
Categories
Tímaskráning

Tímaskráning með æðaskönnun (biometrics)

aedaskanniÞað færist í aukana að notast við lífkenni (biometrics) þegar tímaskráning er annarsvegar. Ein nýjasta lausnin í þessu er æðaskönnun (vein).

Þessi lausn er þægileg í notkun, ekki þarf að muna neinar tölur eða passa að gleyma ekki kortinu sínu. Fingur eða lófi er lagður yfir þar til gert tæki og það „les“ síðan æðarnar og „þekkir“ þannig viðkomandi.

Í lífkennalausnum vinna tækin yfirleitt þannig að þau búa til auðkenni sem síðan er vistað í tækinu. Þau geyma því ekki mynd af lífkenninu sjálfu. Úr þessu auðkenni er ómögulegt að endursmíða lífkennið sjálft. Þetta er grundvallaratriði varðandi persónuvernd.

Æðaskönnun er frekar ný aðferð í þessum geira. Búnaðurinn er enn í dag frekar dýr. Oftast er um að ræða skanna sem tengdir eru við tölvu.

Kostir:

  • Oftast mjög einfalt í notkun
  • Rafræn skráning
  • Býður upp á einfaldleika og sjálfvirkni við úrvinnslu
  • Ein öruggasta lausnin í boði í dag
  • Þarf ekki að muna eftir korti og/eða tölum

Gallar:

  • Töluverður byrjunarkostnaður
Categories
Tímaskráning

Tímaskráning með andlitsskönnun (biometrics)

andlitsskanniÞað færist í aukana að notast við lífkenni (biometrics) þegar tímaskráning er annarsvegar. Í mörgum tilvikum er notast við andlitsskönnun (face recognition).

Þessi lausn er þægileg í notkun, ekki þarf að muna neinar tölur eða passa að gleyma ekki kortinu sínu. Eingöngu þarf að „horfa“ í þar til gert tæki sem „þekkir“ þannig viðkomandi og skráning á sér stað.

Í lífkennalausnum vinna tækin yfirleitt þannig að þau búa til auðkenni sem síðan er vistað í tækinu. Þau geyma því ekki mynd af lífkenninu sjálfu. Úr þessu auðkenni er ómögulegt að endursmíða lífkennið sjálft. Þetta er grundvallaratriði varðandi persónuvernd.

Tímaskráning með andlitsskönnun getur verið ein ódýrasta lífkennalausnin í dag. Hægt er að gera þetta með venjulegri tölvu og vefmyndavél. Þá er notast við þar til gerðan hugbúnað. Einnig er hægt að fá skráningastöðvar sem eru ætlaðar til svona skráninga.

Kostir:

  • Oftast mjög einfalt í notkun
  • Rafræn skráning
  • Býður upp á einfaldleika og sjálfvirkni við úrvinnslu
  • Hægt að gera á frekar ódýran hátt
  • Þarf ekki að muna eftir korti og/eða tölum

Gallar:

  • Sérsmíðaður búnaður getur verið frekar dýr
Categories
Tímaskráning

Tímaskráning með augnskönnun (biometrics)

augnskanniÞað færist í aukana að notast við lífkenni (biometrics) þegar tímaskráning er annarsvegar. Í mörgum tilvikum er notast við augnskönnun.

Þessi lausn er þægileg í notkun, ekki þarf að muna neinar tölur eða passa að gleyma ekki kortinu sínu. Eingöngu þarf að „horfa“ í þar til gert tæki sem „þekkir“ þannig viðkomandi og skráning á sér stað.

Í lífkennalausnum vinna tækin yfirleitt þannig að þau búa til auðkenni sem síðan er vistað í tækinu. Þau geyma því ekki mynd af lífkenninu sjálfu. Úr þessu auðkenni er ómögulegt að endursmíða lífkennið sjálft. Þetta er grundvallaratriði varðandi persónuvernd.

Langoftast er augnskannalausnin notuð með sérsmíðuðum skráningastöðvum en það er þó hægt að notast við venjulega tölvu líka. Þá er augnskanni tengdur við hana.

Kostir:

  • Oftast mjög einfalt í notkun
  • Rafræn skráning
  • Býður upp á einfaldleika og sjálfvirkni við úrvinnslu
  • Ein öruggasta lausnin í boði í dag
  • Þarf ekki að muna eftir korti og/eða tölum

Gallar:

  • Töluverður byrjunarkostnaður
Categories
Tímaskráning

Tímaskráning með handskönnun (biometrics)

handklukkaÞað færist í aukana að notast við lífkenni (biometrics) þegar tímaskráning er annarsvegar. Stundum er notast við handskönnun.

Þessi lausn er ein fyrsta lífkennalausnin sem í boði var. Höndin er lögð á flöt, sem oft er með pinnum sem aðskilja fingur, og tækið skannar höndina. Ekki þarf að muna neinar tölur eða passa að gleyma ekki kortinu sínu. Bara leggja hönd á þar til gerðan skynjara sem „þekkir“ þannig viðkomandi og skráning á sér stað.

Í lífkennalausnum vinna tækin yfirleitt þannig að þau búa til auðkenni sem síðan er vistað í tækinu. Þau geyma því ekki mynd af lífkenninu sjálfu. Úr þessu auðkenni er ómögulegt að endursmíða lífkennið sjálft. Þetta er grundvallaratriði varðandi persónuvernd.

Handskönnun er notuð með sérsmíðuðum skráningastöðvum.

Kostir:

  • Oftast frekar einfalt í notkun
  • Rafræn skráning
  • Býður upp á einfaldleika og sjálfvirkni við úrvinnslu
  • Þarf ekki að muna eftir korti og/eða tölum

Gallar:

  • Getur verið töluverður byrjunarkostnaður