Categories
Tímaskráning

Tímaskráning með iPhone/iPad

iphoneklukkaMeð tilkomu Iphone síma og Ipad spjaldtölva hafa opnast áhugaverðir möguleikar varðandi tímaskráningu.

Hægt er að fara tvær leiðir varðandi tímaskráningu með slíkum tækjum. Önnur er sú að nota einfaldlega skráningu í gegnum heimasíðu. Hin leiðin er að nota þar til gert App til að skrá sig í gegnum.

Einn möguleiki er svo til viðbótar í þeim tækjum sem eru með staðsetningarbúnað í sér, þ.e. að láta þau um leið skrá staðsetningu viðkomandi. Þannig er þá vitað hvar starfsmaður er þegar hann/hún skráir sig í/úr vinnu.

Kostir:

  • Oftast frekar einfalt í notkun
  • Rafræn skráning
  • Engin spjöld eða kort sem þarf að hafa á sér
  • Býður upp á einfaldleika og sjálfvirkni við úrvinnslu
  • Getur verið tiltölulega lítill stofnkostnaður
  • Einstaklega þægilegt fyrir starfsfólk

Gallar:

  • Ef ekki er staðsetningarbúnaður í tæki þá getur starfsmaður skráð sig hvaðan sem er.
Categories
Tímaskráning

Tímaskráning í gegnum heimasíðu

vefklukkaÞað er stöðugt að fjölga í þeim hópi fyrirtækja sem nýta sér tímaskráningu í gegnum vefinn þar sem starfsmaður slær inn auðkennisnúmer sitt, annaðhvort á takkaborð eða á snertiskjá.

Þessi lausn er afskaplega þægileg á margan hátt. Mjög fljót í uppsetningu og mikill sveigjanleiki varðandi breytingar. Allar skráningar skrást miðlægt og er úrvinnsla á upplýsingum þægileg og aðgengileg nánast hvaðan sem er.

Oftast eru þessar lausnir seldar í áskrift. Það þýðir að stofnkostnaður er yfirleitt mjög lítill.

Margir aðilar bjóða upp á tímaskráningu í gegnum heimasíðu.

Kostir:

  • Oftast frekar einfalt í notkun
  • Rafræn skráning
  • Engin spjöld eða kort sem þarf að hafa á sér
  • Býður upp á einfaldleika og sjálfvirkni við úrvinnslu
  • Hægt að nálgast nánast hvaðan sem er

Gallar:

  • Hægt að nálgast nánast hvaðan sem er
  • Starfsmenn geta stimplað hvorn annan inn/út