androidklukkaMeð tilkomu Android síma og spjaldtölva hafa opnast áhugaverðir möguleikar varðandi tímaskráningu.

Hægt er að fara tvær leiðir varðandi skráningu með slíkum tækjum. Önnur er sú að nota einfaldlega skráningu í gegnum heimasíðu. Hin leiðin er að nota þar til gert App til að skrá sig í gegnum.

Einn möguleiki er svo til viðbótar í þeim tækjum sem eru með staðsetningarbúnað í sér, þ.e. að láta þau um leið skrá staðsetningu viðkomandi. Þannig er þá vitað hvar starfsmaður er þegar hann/hún skráir sig í/úr vinnu.

Kostir:

  • Oftast frekar einfalt í notkun
  • Rafræn skráning
  • Engin spjöld eða kort sem þarf að hafa á sér
  • Býður upp á einfaldleika og sjálfvirkni við úrvinnslu
  • Getur verið tiltölulega lítill stofnkostnaður
  • Einstaklega þægilegt fyrir starfsfólk

Gallar:

  • Ef ekki er staðsetningarbúnaður í tæki þá getur starfsmaður skráð sig hvaðan sem er.