Það færist í aukana að notast við lífkenni (biometrics) þegar tímaskráning er annarsvegar. Ein nýjasta lausnin í þessu er æðaskönnun (vein).
Þessi lausn er þægileg í notkun, ekki þarf að muna neinar tölur eða passa að gleyma ekki kortinu sínu. Fingur eða lófi er lagður yfir þar til gert tæki og það „les“ síðan æðarnar og „þekkir“ þannig viðkomandi.
Í lífkennalausnum vinna tækin yfirleitt þannig að þau búa til auðkenni sem síðan er vistað í tækinu. Þau geyma því ekki mynd af lífkenninu sjálfu. Úr þessu auðkenni er ómögulegt að endursmíða lífkennið sjálft. Þetta er grundvallaratriði varðandi persónuvernd.
Æðaskönnun er frekar ný aðferð í þessum geira. Búnaðurinn er enn í dag frekar dýr. Oftast er um að ræða skanna sem tengdir eru við tölvu.
Kostir:
- Oftast mjög einfalt í notkun
- Rafræn skráning
- Býður upp á einfaldleika og sjálfvirkni við úrvinnslu
- Ein öruggasta lausnin í boði í dag
- Þarf ekki að muna eftir korti og/eða tölum
Gallar:
- Töluverður byrjunarkostnaður