Categories
Tímaskráning

Tímaskráning með kortum

kortaklukkaMjög algengt form á tímaskráningu í dag er að notast við skráningastöðvar þar sem starfsmaður notar kort. Það geta ýmist verið svokölluð nándarkort, strikamerkjakort eða segulrandakort.

Oftast er notast við sérstakar skráningastöðvar til verksins en einnig er mögulegt að notast við venjulegar tölvur. Er þá tengdur lesari við tölvuna sem getur skannað kortin.

Það er gríðarlegt úrval til af tækjum og lausnum í þessa notkun. Enda eitt algengasta formið á tímaskráningu í dag, ásamt tímaskráningu með innslætti. Oft er þessu reyndar blandað saman þ.e. bæði notast við kort og staðfestingu með númerainnslætti.

Hægt er að fá lausnir þar sem einungis er safnað skráningum í skráningastöðinni sjálfri og þær síðan teknar reglulega til úrvinnslu. Einnig er hægt að fá lausnir þar sem skráningar safnast sjálfkrafa miðlægt til úrvinnslu.

Þetta er mjög sniðug lausn ef fyrirtæki er í aðgangsstýrðu húsnæði. Þá er hægt að fá sér lausn sem notar sömu kort og eru notuð í aðgangskerfinu.

Kostir:

  • Oftast frekar einfalt í notkun
  • Rafræn skráning
  • Býður upp á einfaldleika og sjálfvirkni við úrvinnslu
  • Sæmilega öruggt ef kort eru ekki geymd á sameiginlegum stað

Gallar:

  • Getur verið töluverður byrjunarkostnaður
  • Starfsmenn geta stimplað hvorn annan inn/út ef kort eru á sameiginlegum stað
Categories
Tímaskráning

Tímaskráning með innslætti

InnsláttarklukkaMjög algengt form á tímaskráningu í dag er að notast við skráningastöðvar þar sem starfsmaður slær inn auðkennisnúmer sitt, annaðhvort á takkaborð eða á snertiskjá.

Allur gangur er á því hvort notast er við sérstakar skráningastöðvar eða einfaldlega venjuleg tölva notuð til verksins, nú eða jafnvel gsm sími.

Það er gríðarlegt úrval til af tækjum og lausnum í þessa notkun. Enda eitt algengasta formið á stimpilklukkum í dag, ásamt tímaskráningu með kortum.

Hægt er að fá lausnir þar sem einungis er safnað skráningum í skráningastöðinni sjálfri og þær síðan teknar reglulega til úrvinnslu. Einnig er hægt að fá lausnir þar sem skráningar safnast sjálfkrafa miðlægt til úrvinnslu.

Kostir:

  • Oftast frekar einfalt í notkun
  • Rafræn skráning
  • Engin spjöld eða kort sem þarf að hafa á sér
  • Býður upp á einfaldleika og sjálfvirkni við úrvinnslu

Gallar:

  • Getur verið töluverður byrjunarkostnaður
  • Starfsmenn geta stimplað hvorn annan inn/út
Categories
Tímaskráning

Tímaskráning með spjaldastimpilklukku

Spjaldaklukka

Ein leið til að skrá vinnutíma er með notkun spjaldastimpilklukku. Þá er klukka á staðnum sem hefur búnað til að ýmist stimpla á þar til gerð spjöld eða gata þau á vissan hátt.

Þannig bætist smátt og smátt á spjaldið upplýsingar um inn- útskráningar.

Hver starfsmaður hefur yfirleitt eitt spjald í notkun á hverjum tíma. Þegar spjaldið er orðið fullt, eða tímabilið sem það á að nota í er liðið, þá tekur starfsmaður nýtt spjald og tækið skráir á það.

Þetta er einfalt form og þægilegt á meðan ekki eru of margir að nota þessa lausn. Það getur hinsvegar verið töluvert verk að vinna úr upplýsingunum á þessum spjöldum og gera klárt fyrir launavinnslu.

Kostir:

  • Lítill byrjunarkostnaður
  • Einfalt í notkun (inn- útstimplun)
  • Spjöld með skráningum (ekki rafrænt)

Gallar:

  • Mikil vinna við úrvinnslu skráninga
  • Spjöld með skráningum (ekki rafrænt)
  • Starfsmenn geta stimplað hvorn annan inn/út
Categories
Tímaskráning

Hvernig fer tímaskráning fram?

Einfaldasta tækið til tímaskráningar sést hér á myndinni:

pappirblyantur

Já, þetta er rétt!
Það þarf í raun ekkert meira en blað og blýant til að skrá tíma.

Þegar kemur að því að skrá vinnutíma í fyrirtækjum þá er nú samt sem áður oftast notast við aðrar aðferðir. Sérstaklega þegar starfsmannafjöldi er orðinn fleiri en 3-4.

Categories
Tímaskráning

Hvað er tímaskráning?

Tímaskráning er, eins og orðið gefur til kynna, skráning á tíma.

Í hvaða tilgangi það er gert er mismunandi. Oftast er þó um að ræða skráningu á tíma sem fer í eitthvert verkefni og/eða skráningu á vinnutíma.

Algengasta formið (sem við flest þekkjum) er t.d. þegar starfsmaður skráir sig til vinnu þegar mætt er og skráir sig úr vinnu þegar farið er heim. Þannig verða til upplýsingar um hvenær vinnudagurinn hófst og hvenær honum lauk. Út frá því eru svo laun endanlega reiknuð.

Á sama hátt er vinnudegi oft skipt niður á verkefni. Þá skráir starfsmaður sig inn á verk þegar vinna við það er hafin og út úr verki þegar því er lokið. Þannig fæst ágætis yfirsýn yfir verkefni og nýtingu vinnutíma.